| > FORSÍÐA > UM FÉLAGIÐ |
| |
| Dúkarar |
Dúklagningar og veggfóðrarar, sem oft eru kallaðir "dúkarar", eru faglærðir sveinar eða meistarar.
Bóklegi hluti námsins fer fram í Iðnskólanum í Reykjavík og Hafnarfirði. Verklegi hlutinn, sem er sá veigamesti, fer að mestu leyti fram í störfum hjá dúklagninga- og veggfóðrarameisturum.
Nú starfa um 70 sveinar og meistarar í faginu á Íslandi.
|
| |
| Iðngreinin |
Iðngreininni tilheyra margs konar klæðningar svo sem veggfóður, skreytiborðar, hersían og fíberstrigi. Dúkarar leggja gólfteppi og gólfdúka sem lagðir eru bæði á hefðbundinn hátt eða með fjölbreyttum mynstrum. Þeir leggja einnig íþróttagólfefni, hlaupabrautir og hljóðdeyfandi gólfklæðningar og klæða sundlaugar og þök. |
|
| Sagan |
Saga veggfóðrunar í Reykjavík nær aftur til byrjunar 19. aldar. Dúklagnir komu hins vegar ekki til sögunnar fyrr en upp úr 1910.
Árið 1925 kom enskur maður til bæjarins til að dúkleggja Landssímahúsið. Réðust menn í vinnu til hans og lærðu þeir dúklagnir af honum.
Þremur árum síðar, eða 4. mars 1928, var haldinn fundur í Baðstofu iðnaðarmanna í Reykjavík. Þangað komu 11 veggfóðrarameistarar til að ræða hagsmunamál sín og stofna til samtaka. Á þessum fundi stofnuðu þeir með sér Veggfóðrarafélag Reykjavíkur og fyrsta stjórn félagsins var þannig skipuð:
> Formaður: Victor Kr. Helgason
> Ritari: Sigurður Ingimundarson
> Féhirðir: Björn Björnsson
|
|
|
| Fyrstir með uppmælingataxta |
Félagsstjórnin hófst þegar handa og þann 24. mars 1928, aðeins þremur vikum eftir fundinn í baðstofunni var gefin út sérstök verðskrá fyrir skilgreind og uppmæld verk.
Þetta var fyrsti uppmælingataxti iðnaðarmanna á Íslandi .
|
|
|
| Nafnabreytingar |
Iðngreinin hefur tekið miklum breytingum á þeim rúmlega sjö áratugum sem síðan hafa liðið. Verkefni félagsmanna hafa þróast og ýmsar áherslubreytingar orðið.
Á fyrstu árunum var mest unnið með veggefni en vægi gólfefna hefur aukist á seinni tímum.
Þessar breytingar endurspeglast meðal annars í því að nafni félagsins hefur tvívegis verið breytt. Í júlímánuði árið 1932 var nafninu breytt í Meistarafélag veggfóðrara og 69 árum síðar, árið 2001, var nafninu aftur breytt í núverandi heiti sem er Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara.
|
|
|
| Aðsetur félagsins |
Félagið er staðsett í Skipholti 70 í Reykjavík.
Félagið byggði það hús ásamt fjórum öðrum meistarafélögum árið 1964 og rekur þar skrifstofu sem sinnir erindum félagsmanna og annarra sem leita til félagsins.
|
|
|
| Stjórn félagsins |
Núverandi stjórn félagsins er þannig skipuð:
> Formaður
Einar Beinteinsson
Sími:892-4588
Netfang: einar@eb.is
> Varaformaður
Guðmundur Jónsson
Sími: 821-3400
Netfang: dukameistari@internet.is
> Gjaldkeri
Þorgeir Valdimarsson
Sími: 896-2362
Fax: 581-2120
Netfang: duktak@simnet.is
> Ritari
Jón Ólafsson
Sími: 896-1446
Netfang: jolafss@simnet.is
> Meðstjórnandi
Guðlaugur Kr. Sigurðsson
Sími: 869-3723
Netfang: jakasel33@simnet.is
> Varastjórnandi
Sigurður Hansson
Sími: 896-9604
Netfang: flotlagnir@flotlagnir.is
|
|