forsidaumfelagidgodradhugmyndirnammbsendufyrirspfelagsmenn
> FORSÍÐA > MEISTARASAMBAND BYGGINGAMANNA
 
Meistarasamband Byggingariðnaðarins stofnað

Á aðalfundi félagsins sem haldinn var 11. apríl 2002 var samþykkt að vinna að stofnun meistarasamtaka innan byggingageirans. Strax var farið að vinna að málinu og aðeins hálfu ári síðar voru samtökin stofnuð - þann 16. október 2002.

Stofnaðilar sambandsins eru Meistarafélag húsasmiða, Félag dúklagninga- og veggfóðrararmeistara, Félag pípulagningameistara og Meistarasamband byggingamanna á Suðurnesjum.
Félagsmenn þessara félaga eru um 550 talsins.

Markmið sambandsins eru:
>
Að vera aðildarfélögum til aðstoðar í sameiginlegum hagsmunamálum.
>
Að treysta samtakamátt og samstöðu félaganna og standa vörð um iðnréttindin.
>
Að annast kaup- og kjarasamninga við viðsemjendur aðildarfélaganna og sjá um útgáfu og dreifingu þeirra.
>
Að vinna að aukinni menntun, verkkunnáttu, verkvöndun og standa fyrir kynningu og fræðslu á hinum ýmsu málum er byggingaiðnaðinn varðar.

Öll félög atvinnurekenda í löggildum iðngreinum í bygginariðnaði eiga rétt til aðildar að sambandinu. Félögin greiða félagsgjöld til sambandsins en þó aldrei fyrir fleiri en 100 félagsmenn. 

Stjórn sambandsins er skipuð einum manni frá hverju félagi og hafa félögin þar skipað stjórnarmenn og varamenn þeirra. Hvert félag fer með eitt atkvæði - óháð stærð. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

Formaður er Baldur Þór Baldvinsson frá Meistarafélagi húsasmiða.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
kjaranstepphardvidarvalteppalandgolfefnaval