• Sími: 591-0100
  • dukur@dukur.is

Kostir við að velja meistara

Þegar velja skal mann í að vinna verk sem fellur undir fag dúklagninga- og veggfóðrarameistara mælum við eindregið með að faglærður maður sé valinn í verkið.

mynd6.jpg

Ástæður þessa eru eftirfarandi:

- Meistari í dúklögn hefur lokið námi til sveinsbréfs og meistararéttinda.

- Meistari hefur fagþekkingu og reynslu og getur veitt aðstoð og.ráðleggingar um efni, litaval og ástand gólfa.

- Meistari þekkir hvaða efni henta aðstæðum hverju sinni.

- Félagi í meistarafélagi dúklagninga-og veggfóðrarameistara ber ábyrgð á vinnu sinni.

 

Ef upp kemur óánægja með vinnu félagsmanns er hægt að bera fram kvörtun við stjórn félagsins sem kemur og metur þau tilfelli sem deilur geta orðið um og metur af hlutleysi aðstæður.

Hvað gera dúkarar og veggfóðrarar?

Iðnin spannar vítt svið og vinnum við með mörg mismunandi efni. Það borgar sig að fá fagmenntaðan mann í verkið. 
Kynntu þér hvað það er sem við gerum og þau efni sem að við notum.