Veggfóður er veggklæðning sem er til í mörgum mismunandi efnum t.d. pappa, vínyl eða fiberstriga.
Möguleikarnir með veggfóðri eru margir og það fer eftir því hvar skal veggfóðra hvort velja eigi vínyl eða pappír.
Vínylveggfóður þolir þrif og hentar því á rými eins og eldhús eða salerni. Pappírsveggfóður hentar í stofur og herbergi og á ganga.
Vinsælt er að skipta veggjum upp þannig að veggfóðursborði skilji að efri og neðri hluta veggjarins, sem geta verið með tveimur mismunandi gerðum eða litum.
Einnig er hægt að afmarka eða skipta upp rýmum með því að setja eina eða fleiri veggfóðurslengjur á hluta rýmisins.
Ef um mjög óslétta veggi er að ræða, er veggfóðrað með pappaundirlagi áður en sjálft veggfóðrið er límt á vegginn til þess að fá fallega slétta áferð á veggina. |